„Getur ekki gengið svona áfram“

Ólafur Stephensen er framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda.
Ólafur Stephensen er framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. Ljósmynd/Aðsend

Stjórn Félags atvinnurekenda (FA) hvetur sveitarfélög eindregið til að lækka álagningarprósentu fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði við gerð fjárhagsáætlana fyrir næsta ár. Það muni hjálpa fyrirtækjum að komast út úr kreppunni.

Þetta er kjarninn í ályktun sem stjórn FA samþykkti á fundi sínum í dag. Hún skorar jafnframt á ríkisstjórnina og sveitarfélögin að setjast að samningaborði og semja um nýtt og sanngjarnara kerfi fasteignaskatta á fyrirtæki.

„Núverandi kerfi, þar sem skattlagning fylgir sveiflum í eignaverði, byggist á flóknum reikniformúlum og er fyrir vikið ógegnsætt og ófyrirsjáanlegt, stenst ekki kröfur stjórnarskrárinnar um skýrleika skattlagningarheimilda,“ segir í ályktuninni.

Fyrirtæki þurfa á öllu sínu að halda

FA segir að íþyngjandi skattbyrði vegna hækkana fasteignamats undanfarin ár gerir fyrirtækjum erfitt fyrir að ná sér á strik eftir kreppuna vegna heimsfaraldurs kórónuveiru.

Samkvæmt nýbirtu fasteignamati fyrir árið 2021 hækkar fasteignamat atvinnuhúsnæðis á landinu enn, um 1,7% á landsvísu. Árin 2013  til 2019 hækkaði fasteignamat atvinnuhúsnæðis á landinu um tæplega 70% og á sama tíma hækkuðu álagðir fasteignaskattar á atvinnuhúsnæði úr 15,2 milljörðum króna í 26,7 milljarða króna, eða um 75%.

„Að mati stjórnar FA getur þetta ekki gengið svona áfram. Stjórnin skorar á sveitarfélögin að leggja sitt af mörkum til þess að létta undir með fyrirtækjum, sem þurfa á öllu sínu að halda til að reisa reksturinn við og skapa atvinnu eftir heimsfaraldurinn.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK