Herdís og Davíð nýir framkvæmdastjórar hjá TR

Herdís Gunnarsdóttir og Davíð Ólafur Ingimarsson.
Herdís Gunnarsdóttir og Davíð Ólafur Ingimarsson. Ljósmyndir/af Svenni Speight.

Herdís Gunnarsdóttir hefur tekið við framkvæmdastjórastöðu réttindasviðs Tryggingastofnunar og Davíð Ólafur Ingimarsson hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra rekstrarsviðs stofnunarinnar. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá TR.

Réttindasvið Tryggingastofnunar er nýtt svið innan stofnunarinnar sem sameinar lífeyrissvið og færnisvið en þar starfa um 60 manns. Helstu verkefni réttindasviðs eru þjónusta við viðskiptavini, afgreiðsla umsókna, ákvörðun réttinda og stjórnsýslumál.

Herdís hefur mikla stjórnendareynslu á heilbrigðissviði, en hún var m.a. forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands 2014 — 2019. Á árunum 2001 — 2014 starfaði hún á Landspítala, m.a. sem klínískur verkefnastjóri á sviði upplýsingatækni og á þróunarskrifstofu framkvæmdastjóra hjúkrunar. Hún var mannauðs- og gæðastjóri hjá Barnaspítala Hringsins og hjúkrunardeildarstjóri á barnaskurðdeild, lyflækningadeild og dagdeild barna á Landspítala. Að auki hefur hún mikla reynslu af stjórnarstörfum á vettvangi félagasamtaka, stéttarfélaga, lífeyrissjóða, banka og í Evrópusamstarfi. Má þar nefna að hún var um tíma stjórnarformaður Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga og situr nú í varastjórn Íslandsbanka. Herdís er með BSc-próf í hjúkrunarfræði frá HÍ og MSc-próf í barnahjúkrun. Árið 2009 lauk hún MBA-prófi frá HÍ, að því er segir í tilkynningu. 

Davíð Ólafur hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Tryggingastofnunar, en helstu verkefni rekstarsviðs eru fjárhagsgreiningar, bókhald, útgreiðslur, innheimta og eftirlit, skjalastjórnun, póstmiðstöð, rekstur húsnæðis og almenn símsvörun.

Davíð hefur umtalsverða fjármála- og stjórnunarreynslu úr orku- og hugbúnaðargeiranum. Á árunum 2007 — 2015 starfaði hann sem yfirmaður lánamála og sjóðastýringar hjá Landsvirkjun. Á árunum 2015 — 2017 starfaði hann sem fjármálastjóri hugbúnaðarfyrirtækisins Greenqloud og var einn af lykilmönnum í söluferli fyrirtækisins til bandaríska félagsins NetApp. Fyrirtækið var selt á yfir fimm (5) milljarða króna sem var ein stærsta sala á íslensku hugbúnaðarfyrirtæki. Frá árinu 2017, þangað til hann hóf störf hjá Tryggingastofnun, starfaði hann m.a. sem forstjóri Guide to Iceland sem er hugbúnaðarfyrirtæki í ferðaþjónustu. Að auki hefur hann setið í stjórnum nokkurra fyrirtækja og var yfir tíu ár stundakennari við Háskóla Íslands. Davíð er með BSc- og MSc-próf í hagfræði, MSc-próf í fjármálum fyrirtækja og er löggiltur verðbréfamiðlari, að því er segir í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK