Framkvæmdastjóri Stefnis lætur af störfum

Jökull H. Úlfsson.
Jökull H. Úlfsson. Ljósmynd/Aðsend

Jökull H. Úlfsson, framkvæmdastjóri Stefnis, hefur óskað eftir að láta af störfum og hefur komist að samkomulagi við félagið um starfslok.

Kristbjörg M. Kristinsdóttir, staðgengill framkvæmdastjóra Stefnis, mun taka tímabundið við starfi framkvæmdastjóra eða þar til stjórnin hefur ráðið í stöðuna. Jökull mun ljúka tilteknum verkefnum fyrir Stefni og vera stjórn og settum framkvæmdastjóra til ráðgjafar, að því er segir í tilkynningu.

Kristbjörg M. Kristinsdóttir.
Kristbjörg M. Kristinsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

„Fyrir hönd stjórnar og starfsfólks Stefnis vil ég þakka Jökli fyrir samstarfið sem hefur verið ánægjulegt og árangursríkt eins og starfsemi Stefnis á árinu 2019 ber vitni. Stjórn óskar Jökli alls hins besta í framtíðinni,“ segir Sigrún Ragna Ólafsdóttir, stjórnarformaður Stefnis, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK