Arion banki býður vistvæn innlán

Arion banki býður nú innlánsreikninginn Grænan vöxt.
Arion banki býður nú innlánsreikninginn Grænan vöxt.

Viðskiptavinum Arion banka býðst nú að leggja sparnað sinn inn á vistvænan innlánsreikning sem kallast Grænn vöxtur.

Í tilkynningu frá bankanum segir að um sé að ræða nýjung hér á landi þar sem einstaklingar, félagasamtök og fyrirtæki geti lagt fjármuni inn á reikning sem eingöngu verður ráðstafað til fjármögnunar umhverfisvænna verkefna. Grænn vöxtur er samkvæmt tilkynningunni óverðtryggður innlánsreikningur sem er óbundinn og því eru innlánin laus til úttektar hvenær sem er.

Fyrst um sinn verður innlánunum miðlað í lán til kaupa á bílum sem nýta umhverfisvæna orkugjafa.

Í tilkynningunni segir einnig að fyrirtækið Circular Solutions hafi tekið út umgjörð bankans um græn innlán, en fyrirtækið gegnir hlutverki óháðs aðila og mun gera árlega úttekt á því hve vel fjármögnuð verkefni uppfylla skilyrði umgjarðarinnar og meta umhverfisáhrif þeirra.

Auðvelda viðskiptavinum bankans að velja umhverfisvænni kosti

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, segir í tilkynningunni að lánin séu hugsuð fyrir alla sem vilja leggja sitt af mörkum til umhverfisvænni framtíðar og það eigi vel við að byrja á grænum bílalánum þar sem nánast allt rafmagn hér á landi sé framleitt með sjálfbærum hætti. „Við höfum sett okkur umhverfis- og loftslagsstefnu sem felur í sér að við ætlum að beina sjónum okkar að verkefnum sem snúa að sjálfbærri þróun og grænni innviðauppbyggingu og þessi nýi innlánsreikningur er einn liður í því. Við viljum að Ísland standi við skuldbindingar sínar í umhverfis- og loftslagsmálum og höfum fullan hug á að auðvelda viðskiptavinum okkar að velja umhverfisvænni kosti. Í baráttunni við loftslagsbreytingarnar er hvert skref mikilvægt,“ segir Benedikt. 

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka.
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka.

Í tilkynningunni segir að með því að leggja sparnaðinn inn á Grænan vöxt styðji viðskiptavinir og Arion banki við eftirfarandi heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun: Markmið 7 um sjálfbæra orku, markmið 9 um nýsköpun og uppbyggingu, markmið 11 um sjálfbærar borgir og samfélög og markmið 13 um aðgerðir í loftslagsmálum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK