Valitor varar við svikahröppum

Valitor.
Valitor. Ljósmynd/Aðsend

Óprúttnir aðilar hafa undanfarnar vikur reynt að nálgast korthafa Valitors með tölvupósti eða smáskilaboðum í nafni þekktra innlendra fyrirtækja og beðið korthafa um að senda persónu- og kortaupplýsingar vegna væntanlegrar endurgreiðslu inn á greiðslukort.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Valitor, sem ítrekar að almenna reglan sé að fyrirtæki og stofnanir biðji ekki um kortaupplýsingar einstaklinga, hvorki í tölvupósti, gegnum SMS né með símtali.

„Fái korthafar slíka beiðni mælum við með að viðkomandi hafi beint samband við viðkomandi fyrirtæki eða stofnun og sannreyni uppruna slíkra beiðna,“ segir í tilkynningunni.

„Það er mikilvægt að korthafar staldri við þegar þeir fá slík skilaboð, hvort sem er í pósti eða með sms. Í sumum tilvikum eru svikararnir að nýta sér staðfestingarkóda í gegnum Vottun Visa með sms. Í kódanum kemur fram hvaða færslu er verið að biðja um staðfestingu á, söluaðili, upphæð og gjaldmiðill. Ef færsla er staðfest hjá söluaðila með slíkum kóda þá er hún óafturkræf. Því miður eru dæmi um að korthafar hafið tapað háum upphæðum vegna svika af þessum toga.“

Valitor brýnir fyrir korthöfum að smella ekki á hlekkinn sem fylgir skilaboðunum og gefa ekki undir neinum kringumstæðum upp kortaupplýsingar. Hafi fólk brugðist við slíkum skilaboðum eða eru í vafa um réttmæti upplýsinga sem þeir fá eru þeir hvattir til að hafa samband strax við viðskiptabanka sinn eða þjónustuver Valitors utan opnunartíma bankans.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK