Pelosi styður frekari stuðning við flugfélög

Nancy Pelosi sést hér flytja ræðu í fulltrúadeildinni fyrr í …
Nancy Pelosi sést hér flytja ræðu í fulltrúadeildinni fyrr í vikunni. AFP

Nancy Pe­losi, for­seti full­trúa­deild­ar Banda­ríkjaþings og leiðtogi demó­krata í deild­inni, leggur til að bandarísku flugfélögin fái frekari ríkisaðstoð en þau eru mörg hver byrjuð að segja upp starfsfólki að nýju. 

Ummæli Pelosi höfðu strax áhrif á verð hlutabréfa í flugfélögunum en óvíst er hvert framhaldið verður því repúblikanar í fulltrúadeildinni komu í veg fyrir að frumvarpið fengi flýtimeðferð í deildinni. 

Pelosi bað í gær stjórnendur bandarískra flugfélaga að fresta því að segja upp starfsfólki og senda það í launalaust leyfi. Lýsti hún yfir stuðningi við að ríkið myndi grípa inn með annað hvort eingreiðslu eða björgunarpakka. Að hennar sögn eru gríðarlegir hagsmunir í húfi enda um tugþúsundir heimila sem eiga hlut að máli. 

Stærstu flugfélög Bandaríkjanna hafa í vikunni sagt upp yfir 30 þúsund starfsmönnum en í byrjun október lauk hlutabótaleiðinni.

Á miðvikudagskvöld tilkynntu flugfélögin American og United að þau myndu senda 19 þúsund og 13 þúsund starfsmenn í launalaust leyfi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK