Hækkun á veitingahús sem „róa lífróður“

Fyrirhuguð er hækkun áfengisgjalds samkvæmt fjárlagafrumvarpi.
Fyrirhuguð er hækkun áfengisgjalds samkvæmt fjárlagafrumvarpi. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, vakti máls á fyrirhugaðri hækkun áfengisgjalds í umræðum um störf þingsins á Alþingi í dag. Telur hún að hækkunin komi sérstaklega illa niður á veitinga- og öldurhúsum sem eigi þegar í miklum rekstrarvanda. 

„Veitingahús og barir sem nú róa lífróður fá þessa hækkun setta á sig af hálfu stjórnvalda. Það þarf að vera eitthvert samhengi á milli veruleikans og aðgerða stjórnvalda og þessi hækkun er ekki nálægt því að ríma við þá stöðu sem veitinga- og öldurhús standa frammi fyrir,“ segir Þorbjörg Sigríður.

Hún bendir á að staðan í miðbænum endurspegli þetta. Við blasi atvinnuleysi í þessum geira. „Það er eins og það vanti upp á þann skilning að veitingahúsin eru vitaskuld hluti af þeirri keðju og því höggi sem ferðaþjónustan er að verða fyrir,“ segir Þorbjörg.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK