Veikara gengi og lægri vextir munu skapa bata

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Við erum að ná tiltölulega góðum árangri í því að verja heimilin að einhverju leyti. Stýrivaxtalækkanir og fleira eru enn að fara í gegnum kerfið. Áhrifin eru enn að koma fram og koma ekki endilega að fullu fram fyrr en óvissan minnkar og fyrirtækin fara að nýta þessa lágu vexti til að fjárfesta.“

Þetta koma fram í máli seðlabankastjórans á fundi peningastefnunefndar. Pen­inga­stefnu­nefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti í morgun að hún hygðist halda stýri­vöxt­um bank­ans óbreytt­um, 1%. Nefnd­in hef­ur lækkað vexti fjór­um sinn­um það sem af er ári og nem­ur lækk­un­in sam­tals tveim­ur pró­sentu­stig­um. Vext­ir hafa aldrei verið jafn lág­ir á Íslandi.

Hefur ekki áhyggjur af verðbólgu

Að sögn Ásgeirs er ljóst að horfur eru verri. Hins vegar bindur hann vonir við að vel takist til með að ná tökum á þriðju bylgju kórónuveirusmita hér á landi. „Það eru verri horfur. Við erum að sjá þriðju bylgjuna, sem við vonandi náum tökum á,“ segir Ásgeir og bætir við að veikara gengi og lægri vextir muni skapa efnahagsbatann. 

Aðspurður segir hann ekki tilefni til að hafa áhyggjur af verðbólgu, en líkt og fram kom í morgun jókst verðbólga milli fjórðunga og mælist nú 3,2%. „Verðbólga hefur aukist aðeins vegna þess að gengið gaf eftir. Þau áhrif munu væntanlega ganga niður.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK