Aðlögunarhæfni einn mikilvægasti eiginleikinn

Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir.
Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Afgerandi meirihluti stjórnenda og sérfræðinga sem fylgdist með haustráðstefnu Stjórnvísi sagðist sammála því að aðlögunarhæfni væri einn mikilvægasti eiginleiki einstaklinga í dag.

Alls sögðust 86% vera því sammála en ráðstefnugestir horfðu á streymi frá ráðstefnunni sem var haldin á Nauthóli í dag. Þema ráðstefnunnar var „Ár aðlögunar – Aðlögun eða andlát“.

„Eitt af fyrstu verkefnum stjórnar hvers árs er að ákveða þema ársins sem við viljum hafa að leiðarljósi. Við höfðum lista af mörgum hugmyndum en um leið og „aðlögun“ var komið á blað varð ekki aftur snúið. Við þurfum öll að aðlagast og það er ekkert grín ef við gerum það ekki,“ segir Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir, formaður stjórnar Stjórnvísi, í tilkynningu.

Hjálmar Gíslason.
Hjálmar Gíslason. Ljósmynd/Aðsend

„Einstaklingar og vinnustaðir þurfa að halda í við markaðinn, endurmennta sig, efla sveigjanleika í rekstri og þróast til að vera samkeppnishæf og hreinlega halda velli í kófinu. Stjórnendur íslenskra fyrirtækja eru sammála um að aðlögunarhæfni sé einn mikilvægasti eiginleiki einstaklinga í dag,“ segir hún.

Fyrirlesarar voru: Hrund Gunnsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Festu, miðstöðvar um samfélagslega ábyrgð, Ólafur Baldursson, framkvæmdastjóri lækninga Landspítala, Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Marel á Íslandi, Darri Atlason, yfirmaður viðskiptaþróunar hjá Lucinity, og Hjálmar Gíslason, stofnandi og framkvæmdastjóri Grid.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK