Feðgar kaupa Íslensku auglýsingastofuna

Feðgarnir Þormóður Jónsson og Baldvin Þormóðsson.
Feðgarnir Þormóður Jónsson og Baldvin Þormóðsson. mbl.is/Hanna Andrésdóttir

Feðgarnir Þormóður Jónsson og Baldvin Þormóðsson hafa keypt vörumerki og eignir Íslensku auglýsingastofunnar sem nýlega var tekin til gjaldþrotaskipta. Þeir hafa nú þegar tekið til starfa undir merkjum Íslensku auglýsingastofunnar. Gert er ráð fyrir að starfsemin verði rekin undir sama nafni og í sama húsnæði og áður. 

„Þormóður hefur langa reynslu að baki í rekstri umsvifamikilla auglýsingastofa og við enduruppbyggingu starfsemi Íslensku auglýsingastofunnar hyggst hann jöfnum höndum sækja liðsauka til reynslubolta í faginu og yngra fólks sem nú þegar hefur gert sig gildandi á sviði markaðs- og kynningarstarfs,“ segir í tilkynningu.

„Til síðarnefnda hópsins verður sérstaklega höfðað með eignarhaldi og þátttöku Baldvins í daglegum verkefnum stofunnar. Baldvin er með BA-gráðu í auglýsingagerð og hefur að undanförnu starfað við góðan orðstír sem markaðsráðgjafi og hugmyndasmiður hjá dönsku auglýsingastofunni Thank You Studio.“

Safna liði

Samningur um kaupin var undirritaður hjá skiptastjóra þrotabúsins í dag. Feðgarnir keyptu vörumerki og viðskiptavild Íslensku auglýsingastofunnar ásamt tölvu- og húsbúnaði, fullum aðgangi að vistuðum gögnum og verkefnum stofunnar og öðru sem fyrirtækinu fylgir. Andvirði hins selda er trúnaðarmál enn sem komið er.

„Enginn eiginlegur rekstur hefur verið í félaginu frá því það var gefið upp til gjaldþrotaskipta. Forgangsverkefni á næstu dögum verður annars vegar að safna liði til starfa og hins vegar að endurvekja eins og kostur er viðskiptasambönd við fyrirtæki sem Íslenska auglýsingastofan þjónustaði fram að gjaldþrotinu til viðbótar við öflun annarra nýrra viðskipta,“ segir í tilkynningu. 

Ólík þekking og áhugasvið

Haft er eftir Þormóði að það sé ögrandi verkefni að taka við „þeim kyndli sem Íslenska auglýsingastofan hefur haldið á lofti í leiðandi hlutverki sínu á auglýsingamarkaðnum um langt árabil. Auglýsingastofa á ekki viðskiptavini sína né heldur verkin sem fyrir þá hafa verið framleidd. Hvorugt er því selt eða keypt í þessum viðskiptum en ég tel engu að síður mikil verðmæti fólgin í vörumerkinu og eignum þess. 

Ég veit að fyrsta fastráðna starfsfólkið sem mun fylkja sér að baki endurvöktum rekstri mun fyllilega rísa undir þeim faglegu gæðum sem þetta stóra nafn og langa saga kallar á. Það er spennandi, en krefst líka ákveðinnar jafnvægislistar, að setja saman frá grunni öfluga liðsheild undir þessum merkjum. Við feðgar munum leitast við að tefla þar saman ólíkri þekkingu og áhugasviðum og gæta þess jafnframt að nýi og gamli skóli auglýsingagerðar og markaðsfræða mætist í gagnkvæmri virðingu og samhentu átaki. Ég er sannfærður um að útkoman á eftir að færa okkur skemmtilegt og árangursríkt samstarf, jafnt innanhúss sem í samskiptum við viðskiptavini og samstarfsaðila, á komandi árum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK