Svanhildur nýr framkvæmdastjóri

Svanhildur Hólm Valdsdóttir.
Svanhildur Hólm Valdsdóttir. mbl.is/Kristinn Magnússon

Viðskiptaráð Íslands hefur ráðið Svanhildi Hólm Valsdóttur í starf framkvæmdastjóra. Svanhildur er lögfræðingur frá Háskóla Íslands með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík.

Síðastliðin ár hefur Svanhildur starfað sem aðstoðarmaður fjármála- og efnahagsráðherra, með stuttri viðdvöl í forsætisráðuneytinu, en hún vann einnig við fjölmiðla um árabil.

 „Við erum afar spennt að fá Svanhildi til liðs við okkur. Hún hefur mikla reynslu og þekkingu á efnahags- og viðskiptalífinu sem er dýrmætt á þessum víðsjárverðu tímum. Viðskiptaráð er mikilvæg rödd íslensks atvinnulífs og hjá okkur eru spennandi verkefni framundan, sem Svanhildur mun koma inn í af krafti.“ segir Ari Fenger, formaður Viðskiptaráðs, í tilkynningu.

Svanhildur hefur störf hjá Viðskiptaráði 1. desember.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK