Aldís til Póstsins frá Advania

Aldís Björgvinsdóttir nýr vörustjóri innlendrar vöru og þjónustu hjá Póstinum.
Aldís Björgvinsdóttir nýr vörustjóri innlendrar vöru og þjónustu hjá Póstinum. Ljósmynd/Aðsend

Aldís Björgvinsdóttir hefur verið ráðin í starf vörustjóra innlendra vara og þjónustu á þjónustu- og markaðssviði Póstsins. Aldís hefur þegar tekið til starfa og ber ábyrgð á innlendu vöruframboði Póstsins sem og afkomu af innlendum vörum.

Aldís starfaði síðast hjá Advania þar sem hún sinnti starfi verkefnastjóra. Þar áður starfaði hún hjá LS Retail, einnig sem verkefnastjóri og þá hefur hún starfað hjá Azazo, Arion banka og Berkshire Mortage Finance.

Aldís er með BS próf í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og hefur einnig stundað nám við University of Massachusetts Boston.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK