Stórkaup á metangasi

Vilhjálmur Þór Matthíasson, eigandi Fagverk og Malbikstöðvarinnar. Helgi Þór Ingason, …
Vilhjálmur Þór Matthíasson, eigandi Fagverk og Malbikstöðvarinnar. Helgi Þór Ingason, framkvæmdastjóri Sorpu, Baldur Þór Halldórsson framkvæmdastjóri Malbikstöðvarinnar og Jón Viggó Gunnarsson, sérfræðingur Sorpu í markaðs- og tækniþróun.

Malbikstöðin & Fagverk og Sorpa hafa undirritað sameiginlega viljayfirlýsingu um kaup og sölu á allt að milljón normalrúmmetrum (Nm3) af hreinsuðu metangasi á ári.

Það samsvarar tæplega helmingi af afkastagetu GAJU, gas- og jarðgerðarstöðvar SORPU. Með yfirlýsingunni lýsa Malbikstöðin & Fagverk og SORPA yfir ætlun sinni að starfa saman að því að á komist bindandi samningur þeirra á milli um viðskipti með metan um mitt ár 2021.

Helgi Þór Ingason, framkvæmdastjóri SORPU, segir í fréttatilkynningu að töluverð eftirspurn sé eftir metangasi frá GAJU. 

Metangasinu er ætlað að koma í staðinn fyrir umtalsvert magn af dísilolíu í starfsemi Malbikstöðvarinnar og Fagverks. Með því að nota metangas í stað dísilolíu til að framleiða malbik draga fyrirtækin umtalsvert úr kolefnisfótspori malbiksins.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK