Samkaup bæta þremur í hópinn

Sigurpáll Melberg, Finnbogi Llorens og Marteinn Már Antonsson nýjir starfsmenn …
Sigurpáll Melberg, Finnbogi Llorens og Marteinn Már Antonsson nýjir starfsmenn Samkaupa. Ljósmynd/Aðsend

Samkaup hafa ráðið inn þrjá nýja starfsmenn; Finnboga Llorens, Martein Má Antonsson og Sigurpál Melberg. Allir hafa þeir þegar hafið störf. 

Um nýja starfsmenn Samkaupa í tilkynningu segir: 

„Finnbogi Llorens hefur hafið störf sem rekstrarstjóri vöruhúss og flutninga.

Áður starfaði Finnbogi sem innkaupastjóri hjá Ellingssen og þar áður sem vörustjóri hjá Olíuverzlun Íslands. Finnbogi hefur einnig stundað nám í rekstrarhagfræði við Háskólann í Reykjavík auk þess að stunda nám á frumgreinadeild sama skóla. 

Marteinn Már Antonsson hefur hafið störf sem verkefnastjóri á fjármálasviði Samkaupa.

Marteinn lauk nýlega námi í viðskiptafræði við Háskólann í Reykjavík. Samhliða námi vann Marteinn sem þjónusturáðgjafi og gjaldkeri hjá Arion banka. 

Sigurpáll Melberg hóf nýlega störf sem innkaupastjóri hjá Samkaupum.

Áður starfaði Sigurpáll hjá Ölgerð Egils Skallagrímssonar. Sigurpáll lauk nýlega námi í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum við Háskóla Íslands.“

Einnig segir í tilkynningu Samkaupa að hjá fyrirtækinu starfi um 1300 manns í tæplega 700 stöðugildum. Samkaup reka 60 verslanir víðsvegar um landið og spanna þær allt frá lágvöruverslunum til þægindaverslana. 

Samkaup reka Nettó, Kjörbúðina, Krambúðina og Iceland. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK