Davíð til Betri samgangna

Davíð Þorláksson, nýráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna ohf.
Davíð Þorláksson, nýráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna ohf. Ljósmynd/Aðsend

Davíð Þorláksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna ohf.

Davíð starfaði áður  sem forstöðumaður hjá Samtökum atvinnulífsins frá 2017 og þar áður sem yfirlögfræðingur Icelandair Group frá 2009-2017. Þá var hann einnig framkvæmdastjóri fasteignafélaganna Lindarvatns frá 2015-2017 og Hljómalindarreits frá 2016-2017.

Davíð hefur umtalsverða stjórnunarreynslu. Hann er í dag stjórnarformaður hjá VIRK starfsendurhæfingarsjóði og Ungum frumkvöðlum.

Davíð er stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri, lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2006 og varð héraðsdómslögmaður 2009. Hann er með MBA gráðu frá London Business School og varð löggiltur verðbréfamiðlari 2017.

„Betri samgöngur ohf. er opinbert hlutafélag sem stofnað var til að hrinda í framkvæmd uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu í samræmi við samgöngusáttmála sem ríkið sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu gerðu með sér.

Fyrirtækið hefur yfirumsjón með  framkvæmdum vegna uppbyggingar á samgöngum á höfuðborgarsvæðinu og fjármögnun þeirra. Þar með talið mikilvægar stofnvegaframkvæmdir til að tryggja umferðaröryggi, uppbygging almenningssamgangna með Borgarlínu og uppbygging göngu- og hjólastíga. Markmið félagsins er að stuðla að greiðum, skilvirkum, hagkvæmum og öruggum samgöngum á höfuðborgarsvæðinu með jafnri uppbyggingu innviða allra samgöngumáta,“ segir í tilkynningu frá Betri samgöngum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK