Wise flytur höfuðstöðvarnar í Ofanleiti

Höfuðstöðvar Wise eru nú í Ofanleiti 2.
Höfuðstöðvar Wise eru nú í Ofanleiti 2. Ljósmynd/Aðsend

Wise gerði nýlega langtímaleigusamning við fasteignafélagið Regin um leigu á húsnæði fyrir starfsemi sína í Reykjavík og á Akureyri. Starfsemi Wise í Reykjavík hefur nú þegar verið flutt úr Borgartúni 26 í húsnæði í eigu Regins í Ofanleiti 2. 

Fram kemur í tilkynningu, að Wise verði á efstu hæð hússins en verkfræðistofan Verkís er einnig með starfsemi sína í húsinu en það hýsti áður Háskólann í Reykjavík. 

Á næstu vikum mun starfsemi Wise á Norðurlandi einnig flytja starfsemi sína í húsnæði Regins, við Skipagötu 9 á Akureyri.    

Þá segir, að Wise stefni á að árið 2021 verði það stærsta í 26 ára rekstrarsögu fyrirtækisins. Vöru- og þjónustuframboð fyrirtækisins hafi aukist með sameiningu við Centara og Clarito sem og með samstarfi við LS Retail og fleiri birgja. 

Wise er í dag einn stærsti söluaðili Microsoft Dynamics 365 lausna á Íslandi og er í fararbroddi í upplýsingatækni með áherslu á bókhald, ráðgjöf, hugbúnaðargerð og innleiðingar ásamt öflugri og persónulegri þjónustu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK