Skattadagurinn 2021 er rafrænn í ár og er hægt að fylgjast með umræðunni þar í beinu streymi hér á mbl.is. Útsendingin hefst klukkan 9 og stendur til klukkan 10.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra flytur opnunarávarpið. Þá taka til máls Anna Hrefna Ingimundardóttir, forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins, og Haraldur I. Birgisson, meðeigandi Deloitte og sviðsstjóri skatta- og lögfræðiráðgjafar.
Þau Hrefna Björk Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri Taste ehf. og eigandi veitingastaðarins Rok, Sigríður Margrét Oddsdóttir framkvæmdastjóri Lyfju hf. og Pétur Hafsteinn Pálsson framkvæmdastjóri Vísis hf. flytja einnig stutt erindi.
Þáttastjórnandi er Agla Eir Vilhjálmsdóttir, lögfræðingur Viðskiptaráðs Íslands.
Skattadagurinn er haldinn árlega í góðu samstarfi Deloitte, Samtaka atvinnulífsins og Viðskiptaráðs Íslands.