Jóhanna Harpa til Kontor

Jóhanna Harpa Agnarsdóttir.
Jóhanna Harpa Agnarsdóttir.

Jóhanna Harpa Agnarsdóttir hefur verið ráðin í starf viðskiptastjóra hjá auglýsingastofunni Kontor Reykjavík. 

Hlutverk hennar verður meðal annars að vinna að stefnumótun og markaðsráðgjöf fyrir  viðskiptavinahóp Kontor Reykjavík ásamt verkefnastjórnun og öðrum daglegum verkefnum að því er segir í tilkynningu. 

„Jóhanna Harpa hefur mikla reynslu af auglýsingastörfum hér á landi. Hún hóf störf árið 2014 hjá fyrirtækinu Janúar sem sameinaðist síðar PIPAR/TBWA. Hún starfaði þar í rúm tvö ár og voru helstu viðskiptavinir hennar þar Ölgerðin og Dominos. 

Haustið 2016 hóf Jóhanna Harpa svo störf hjá Íslensku auglýsingastofunni þar sem hún starfaði í fjögur  ár og meginhluta þess tíma fyrir Icelandair, í innlendum og erlendum markaðsverkefnum félagsins.“  

Jóhanna Harpa er með meistaragráðu í markaðs- og samskiptastjórnun (e. Marketing Communication Management) frá Copenhagen Business School. Hún lauk BS-gráðu í Viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 2005. 

„„Auglýsingastofan Kontor Reykjavík var stofnuð í lok árs 2014 af hjónunum Sigrúnu Gylfadóttur og Alex Jónssyni sem eru með áratuga reynslu af íslenskum auglýsingamarkaði. Á þessum stutta tíma frá stofnun hefur stofan hlotið fjölda verðlauna og þar á meðal unnið til fimm alþjóðlegra verðlauna fyrir herferðir sínar og má þar nefna virtu Epica verðlaunin fyrir Alvogen, Brand Impact Awards fyrir Kringluna og verðlaun Art Dirctors Club of Europe fyrir Amnesty International. 

Meðal viðskiptavina Kontor Reykjavík eru Kringlan, Alvogen, Men&Mice, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Akta sjóðir, Íslensk erfðagreining, Hugverkastofan og Farmers Market,““ að því er segir í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK