ÍSAM, ÓJ&K og Sælkeradreifing sameina heildsölurekstur

Fram kemur í tilkynningu, að fyrirhuguð sameining nái eingöngu til …
Fram kemur í tilkynningu, að fyrirhuguð sameining nái eingöngu til heildsöluhluta fyrirtækjanna þriggja en ekki framleiðslufyrirtækja á þeirra vegum. Ljósmynd/Aðsend

Samkomulag hefur náðst milli hluthafa ÍSAM ehf. annars vegar og hluthafa Ó. Johnson & Kaaber ehf. og Sælkeradreifingar ehf. hins vegar um að sameina heildsölurekstur fyrirtækjanna í nýju félagi. Samruninn er háður samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Fram kemur í tilkynningu, að fyrirhuguð sameining nái eingöngu til heildsöluhluta fyrirtækjanna þriggja en ekki framleiðslufyrirtækja á þeirra vegum (Nýja kaffibrennslan, Kaffitár, Myllan, Ora, Kexverksmiðjan Frón, Kexsmiðjan) sem verða áfram í eigu núverandi hluthafa.  

Það er tekið fram að aðilar að samkomulagsins muni ekki tjá sig um fyrirhugaða sameiningu á meðan hún sé til skoðunar hjá Samkeppniseftirlitinu.

Ó. Johnson & Kaaber er meðal elstu starfandi fyrirtækja landsins og fagnar 115 ára afmæli á þessu ári. Frá stofnun þess árið 1906 hefur ÓJ&K höndlað með margs konar innfluttan varning, einkum þó matvæli og hreinlætisvörur. Árið 2006 keypti ÓJ&K heildsöluna Sælkeradreifingu sem sérhæfir sig í innflutningi og sölu til stóreldhúsa, s.s. veitingahúsa, mötuneyta og hótela. Kaffibrennsla ÓJ&K, stofnuð 1924, hefur frá árinu 2000 starfað undir nafni Nýju kaffibrennslunnar sem árið 2018 keypti framleiðslu og rekstur Kaffitárs. Starfsmenn ÓJ&K og SD eru um 70 talsins. Nýja kaffibrennslan og Kaffitár verða ekki hluti af fyrirhugaðri sameiningu og verða áfram í eigu núverandi hluthafa, að því er segir í tilkynningunni. 

 ÍSAM var stofnað í apríl 1964 og hefur frá upphafi lagt höfuðáherslu á að flytja inn og markaðssetja þekkt vörumerki í náinni samvinnu við framleiðendur en fyrirtækið var áður þekkt sem Íslensk-Ameríska. Upp úr aldamótum 2000 bættust við samstæðuna framleiðslufyrirtækin Myllan, Ora, Frón og Kexsmiðjan á Akureyri. Starfsmenn heildsöluhluta ÍSAM eru um 60 talsins. Framleiðslueiningarnar verða áfram í eigu núverandi hluthafa, segir ennfremur

Fjármálaráðgjöf Deloitte hefur umsjón með fyrirhugaðri sameiningu ásamt lögmannsstofunum LOGOS og Juris.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK