Bestu íslensku vörumerkin valin í fyrsta sinn

Vörumerkjastofan brandr hyggst veita verðlaunin árlega.
Vörumerkjastofan brandr hyggst veita verðlaunin árlega.

Vörumerkjastofan brandr mun veita markaðsverðlaunin „Bestu íslensku vörumerkin“ í fyrsta sinn þann 25. febrúar næstkomandi. Með verðlaununum vill brandr efla umræðu um mikilvægi góðrar vörumerkjastefnu og verðlauna fyrirtæki sem stóðu sig best á þessu sviði á nýliðnu ári.

Verðlaunin eru veitt á grundvelli vörumerkjastefnu fyrirtækja, og er m.a. litið til viðskiptalíkana og staðfærslu þeirra við valið. Valnefndin er skipuð 54 sérfræðingum úr atvinnulífinu og fræðasamfélaginu, og hefur hún sett fram lista yfir tilnefnd vörumerki sem hún mat framúrskarandi.

Verðlaunin eru veitt í fjórum flokkum, sem er skipt upp eftir starfsmannafjölda og því hvort vörumerkin starfi á einstaklings- eða fyrirtækjamarkaði.

Þau 30 vörumerki sem hlutu tilnefningu í ár eru eftirfarandi:                                   

  • Fyrirtækjamarkaður, starfsfólk 50 eða fleiri: Controlant, Marel, Meniga, Nox Medical, Origo.
  • Fyrirtækjamarkaður, starfsfólk 49 eða færri: Akademias, Alfreð, Brandenburg, Múrbúðin, Payday.
  • Einstaklingsmarkaður, starfsfólk 50 eða fleiri: 66 norður, Byko, Elko, Heimkaup, Ísey skyr, Krónan, Lyfja, Nettó, Nova, Síminn.
  • Einstaklingsmarkaður, starfsfólk 49 eða færri: Arna, Blush, Brauð & co, Brikk, Eldum rétt, Feel Iceland, Good Good, Húrra Reykjavík, Hlemmur Mathöll, Omnom.

Þann 25. febrúar fer svo fram verðlaunaathöfn í beinni útsendingu á netinu þar sem bestu vörumerkin fá viðurkenningu. Þá verða verðlaunin veitt árlega hér eftir.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK