Óbreyttir vextir

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands: Rannveig Sigurðardóttir staðgengill formanns, Gylfi Zoëga. Ásgeir …
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands: Rannveig Sigurðardóttir staðgengill formanns, Gylfi Zoëga. Ásgeir Jónsson, formaður, Katrín Ólafsdóttir og Gunnar Jakobsson, Ljósmynd/Aðsend

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 0,75%. Stýrivextir hafa aldrei verið jafn lágir á Íslandi og nú.

Seðlabankinn lækkaði stýrivexti um 2,25 prósentur í fyrra til þess að bregðast við Covid-19. Bæði Íslandsbanki og Landsbankinn spáðu því að vextir yrðu óbreyttir. 

Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Seðlabankans sem birt er í febrúarhefti Peningamála virðist innlend eftirspurn hafa verið þróttmeiri í fyrra en áður var áætlað og efnahagssamdrátturinn því verið minni en bankinn spáði í nóvember. Á þessu ári eru einnig horfur á að innlend eftirspurn vaxi meira en áður var spáð en á móti vega lakari útflutningshorfur. Þróun efnahagsmála mun þó markast af framvindu farsóttarinnar.

„Verðbólga jókst í janúar þegar hún mældist 4,3%. Hér vega enn þungt áhrif gengislækkunar krónunnar á verð innfluttrar vöru. Á sama tíma hefur verð innlendrar vöru einnig hækkað sem endurspeglar að einhverju leyti þrótt innlendrar eftirspurnar. Þá hefur alþjóðlegt olíu- og hrávöruverð hækkað og við bætast óhagstæð grunnáhrif frá janúar í fyrra. Samkvæmt spá Seðlabankans eru horfur á að verðbólga verði um 3,9% á fyrsta fjórðungi ársins en að hún hjaðni tiltölulega hratt er líður á árið enda töluverður slaki til staðar í þjóðarbúinu og gengi krónunnar hefur hækkað undanfarna mánuði.

Peningastefnunefnd mun beita þeim tækjum sem nefndin hefur yfir að ráða til að styðja við þjóðarbúskapinn og tryggja að verðbólga hjaðni aftur í markmið innan ásættanlegs tíma,“ segir í yfirlýsingu frá peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK