Farþegum fækkaði um 98%

Fflutningatölur Icelandair Group fyrir febrúarmánuð bera áfram með sér einkenni …
Fflutningatölur Icelandair Group fyrir febrúarmánuð bera áfram með sér einkenni heimsfaraldurs. Eggert Jóhannesson

Icelandair flutti farþega nánast eingöngu til og frá Íslandi í febrúar í ár og dróst farþegafjöldi saman um 98% á milli ára. Heildarsætaframboð hjá flugfélaginu dróst saman um 95% á milli ára.

Þetta kemur fram í mánaðarlegum flutningatölum fyrir febrúarmánuð sem Icelandair Group birti í Kauphöll í dag.

Fjöldi farþega hjá Air Iceland Connect var um 14.000 í febrúar og fækkaði farþegum um 20% á milli ára. Framboð í innanlandsflugi dróst saman um 24% á milli ára. Fraktflutningar voru sambærilegir og á sama tíma í fyrra.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK