Bólusettir fá ókeypis kleinuhringi út árið

Krispy Kreme lofar líka að gefa bólusetningarmiðstöðvum kleinuhringi til að …
Krispy Kreme lofar líka að gefa bólusetningarmiðstöðvum kleinuhringi til að halda heilbrigðisstarfsmönnum vel nærðum.

Kleinuhringjakeðjan bandaríska, Krispy Kreme, hóf í gær að efna loforð sitt um að bjóða öllum sem hefðu þegið bólusetningu við Covid-19 einn ókeypis kleinuhring á dag. Fyrstu bólusettu Bandaríkjamennirnir mættu á staðinn og nældu sér í einn „Original Glazed“.

Tilboðið gildir til ársloka 2021 og býðst öllum þeim sem fengið hafa bóluefni Pfizer, Moderna eða Johnson & Johnson. 

„Að gefa ókeypis Original Glazed-kleinuhringi þeim sem ákveða að bólusetja sig er bara enn eitt framlag frá okkur, sem við vonumst til þess að geri líf fólks örlítið sætara á meðan þjóðin flýtir sér að vinna bug á veirunni,“ sagði í yfirlýsingu félagsins.

Markmiðið er að hvetja fleiri til að þiggja bólusetningu.

Andstæðingar bólusetninga óánægðir

Af sömu ástæðu ætla Krispy Kreme að gefa bólusetningarmiðstöðvum kleinuhringi til að halda heilbrigðisstarfsmönnum vel nærðum.

Tilboðið gildir um öll Bandaríkin og ljóst að Íslendingar fá þess ekki notið, enda hætti Krispy Kreme starfsemi hér á landi árið 2019. Á Vice er fjallað um að uppátæki fyrirtækisins hafi þegar vakið mikla óánægju á meðal andstæðinga bólusetninga.

Krispy Kreme varð ekki langlíft á Íslandi.
Krispy Kreme varð ekki langlíft á Íslandi. Ljósmynd/Krispy Kreme
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK