Kaffitár lokar í Bankastræti

Eftir næstu mánaðamót verða kaffihús Kaffitárs fimm talsins.
Eftir næstu mánaðamót verða kaffihús Kaffitárs fimm talsins. Mynd/mbl.is

Kaffitár ætlar að loka kaffihúsinu sem rekið hefur verið í Bankastræti, tímabundið í það minnsta. Þá hefur kaffihúsinu í Þjóðminjasafninu verið endanlega lokað.

Sólrún Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri sölu- og markaðsdeildar Kaffitárs, segist vona til þess að reksturinn í Bankastræti hefjist aftur sem fyrst. Kaffihúsið verður opið út marsmánuð.

Tímabilið síðan faraldurinn hófst hafi verið erfiður rekstraraðilum, sérstaklega í miðbænum sem áður var fullur af ferðamönnum.

Kaffihúsinu í Þjóðminjasafninu var hins vegar endanlega lokað mánaðamótin janúar og febrúar og mun það ekki opna að nýju.

Sólrún segir það ekki á döfinni að loka fleiri kaffihúsum en Kaffitár rekur nú sex staði sem verða fimm 1. apríl. Þeir eru staðsettir í Háskólanum í Reykjavík, Höfðatorgi, Kringlunni, Stórhöfða, Nýbýlavegi og Bankastræti.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK