IKEA heldur versluninni opinni

Veitingastað og kaffihúsi verður lokað.
Veitingastað og kaffihúsi verður lokað. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Vegna hertra sóttvarnareglna verða veitingastaður og kaffihús IKEA lokuð frá og með morgundeginum, 25. mars. Verslunin verður opin frá 11-20.

Frá þessu greinir IKEA í tilkynningu á Facebook.

„Við minnum gesti okkar á að fara varlega og sinna persónulegum sóttvörnum. Grímuskylda er í versluninni og við biðjum alla að spritta hendur þegar gengið er inn,“ segir í tilkynningunni. Um leið er minnt á að vefverslunin verði áfram opin.

„Hægt er að velja á milli þess að sækja vörurnar til okkar eða fá þær sendar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK