Stefnir lýkur fjármögnun á 16 milljarða framtakssjóði

Teymið sem vinnur við stýringu sjóðsins hjá Stefni. Ari Ólafsson, …
Teymið sem vinnur við stýringu sjóðsins hjá Stefni. Ari Ólafsson, Arnar Ragnarsson, Heiðar Ingi Ólafsson og Eiríkur Ársælsson.

Stefnir hf. hefur lokið fjármögnun á 16 milljarða framtakssjóði, SÍA IV. Mikil eftirspurn var meðal fjárfesta og nam heildarfjárhæð áskrifta um 20 milljörðum króna að því er segir í fréttatilkynningu.

SÍA IV mun fjárfesta í hlutafé óskráðra fyrirtækja með það að markmiði að taka þátt í verðmætasköpun gegnum uppbyggingu og umbreytingu í rekstri. Auk þess verður lögð áhersla á að fyrirtæki sem sjóðurinn fjárfestir í tileinki sér sjálfbærni og samfélagsábyrgð.

„SÍA IV er fjórði sjóðurinn í röð SÍA framtakssjóða sem hófu starfsemi árið 2011 og hafa frá þeim tíma leitt fjárfestingar í íslensku atvinnulífi fyrir yfir 50 milljarða króna. SÍA-sjóðirnir hafa undanfarinn áratug átt þátt í því að fjölga fjárfestingarkostum og snertiflötum fjárfesta við innlent atvinnulíf með fjárfestingum í fjölbreyttri flóru fyrirtækja. Þá hafa sjóðirnir tekið þátt í uppbyggingu skráðs hlutabréfamarkaðar hér á landi, bæði með nýskráningum félaga í eigu sjóðanna í kauphöll og sölu til skráðra fyrirtækja,“ segir í tilkynningu.

„Við teljum að á næstu árum verði góð tækifæri til fjárfestinga þar sem við erum að koma úr umhverfi og aðstæðum sem hafa markast af óvissu og biðstöðu. Fyrirtæki sjá tækifæri til að sækja fram og gera umbætur á sínum rekstri sem í mörgum tilvikum mun kalla á aukið hlutafé og breytingar á eignarhaldi. Þá er fjöldi fyrirtækja að færast af frumstigi og yfir á vaxtarstig og þarf á fjármagni og aðkomu nýrra fjárfesta að halda til að raungera áform sín. Með þeim stuðningi sem fjárfestar hafa sýnt okkur er SÍA IV vel í stakk búinn að taka virkan þátt í áframhaldandi uppbyggingu í íslensku atvinnulífi“, segir Arnar Ragnarsson, forstöðumaður sérhæfðra fjárfestinga hjá Stefni, í fréttatilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK