Ástþór yfir leigumiðlun Croisette á Íslandi

Ástþór Helgason fasteignasali, kominn til Croisette á Íslandi.
Ástþór Helgason fasteignasali, kominn til Croisette á Íslandi.

Fasteignaráðgjafarfyrirtækið Croisette Real Estate Partner á Íslandi hefur fengið Ástþór Helgason fasteignasala til liðs við sig sem yfirmann leigumiðlunar. Mun hann hafa umsjón með leigumiðlun fyrirtækisins á Íslandi.

Í tilkynningu um ráðninguna segir m.a. að Ástþór hafi langa reynslu af sölu fasteigna og fyrirtækja og er einn stofnenda Fasteignasölu Kópavogs. Ráðningin sé næsta skref í sókn Croisette á Íslandi en um miðjan nóvember sl. var tilkynnt um opnun skrifstofu fyrirtækisins hér á landi. Er fyrirtækið nú þegar komið með þrjá starfsmenn.

Croisette Real Estate Partner hefur haslað sér völl á sænskum fasteignamarkaði og fyrirtækið býr að sterku tengslaneti með nokkra af helstu fasteignafjárfestum Norðurlanda innanborðs, segir í tilkynningu. Auk starfstöðvarinnar á Íslandi hyggir fyrirtækið á frekari sókn á næstu misserum og hefur þegar tilkynnt um fyrirhugaða opnun skrifstofu í Kaupmannahöfn.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK