Setja 1.500 milljónir í Meniga

Meniga.
Meniga. Ljósmynd/Aðsend

Fjártæknifyrirtækið Meniga hefur tryggt sér eins og hálfs milljarðs króna fjármögnun. Fjármögnunin var leidd af hollenska fjárfestingasjóðnum Velocity Capital Fintech Futures og íslenska fjárfestingasjóðnum Frumtak Ventures.

Aðrir þátttakendur voru sænski fjárfestingasjóðurinn Industrifonden, breski sjóðurinn UK Future Fund og bankarnir UniCredit, Swedbank, BPCE og Íslandsbanki. Þessir bankar og fjárfestingasjóðir eiga það sameiginlegt að hafa verið lengi í hópi eigenda og viðskiptavina Meniga að því er segir í tilkynningu frá Meniga.

Georg Lúðvíksson, forstjóri og meðstofnandi Meniga.
Georg Lúðvíksson, forstjóri og meðstofnandi Meniga. Ljósmynd/Aðsend

„Við erum mjög ánægð með áframhaldandi stuðning fjárfesta. Nýtt fjármagn mun gera okkur kleift að markaðssetja vörur okkar til væntanlegra viðskiptavina um allan heim. Carbon Insight er gott dæmi um vöru sem mikill áhugi er á en að minnsta kosti fjórir bankar í jafnmörgum löndum munu taka hana í gagnið á þessu ári og við sjáum vaxandi eftirspurn eftir henni hjá bönkum um allan heim,“ segir Georg Lúðvíksson, forstjóri og meðstofnandi Meniga, í fréttatilkynningu.

Svana Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Frumtak Ventures.
Svana Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Frumtak Ventures. Ljósmynd/Aðsend

„Við höfum frá upphafi verið sannfærð um að Meniga hafi mjög spennandi vaxtarmöguleika á sviði fjártækni. Meniga hefur fest sig í sessi sem öflugur brautryðjandi í fjártæknilausnum fyrir helstu banka um allan heim, en sá markaður er nú í örum vexti sem aldrei fyrr,“ segir Svana Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Frumtak Ventures, í fréttatilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK