Uppgjör Skúla: „Ég sakna WOW í öllu sínu veldi“

Skúli Mogensen stofnaði flugfélagið WOW air árið 2012.
Skúli Mogensen stofnaði flugfélagið WOW air árið 2012. mbl.is/RAX

„Ég á erfitt með að trúa því að þegar séu liðin tvö ár frá því að WOW air flaug sitt síðasta flug og ég þurfti að horfast í augu við þá staðreynd að þessu ótrúlega ævintýri væri lokið. Að sumu leyti er þetta þegar orðinn fjarlægur draumur en samt líður vart sá dagur að ég hugsi ekki um þann frábæra hóp sem gerði WOW að veruleika. Þetta var einstakt í alla staði.“

Þetta skrifar Skúli Mogensen, athafnamaður og fyrrverandi forstjóri flugfélagsins WOW air, í facebookfærslu þar sem hann minnist þess að tvö ár eru liðin síðan flugfélagið þurfti að hætta starfsemi.

Misgáfuð eftiráspeki „sérfræðinga“

Hann segir margt hafa verið skrifað um fall WOW og að það hafi ekki vantað „sérfræðinga“ með misgáfulega eftiráspeki. Í grunninn hafi fall flugfélagsins þó verið einfalt.

„WOW hætti að vera lággjaldafélag og þar með afvegaleiddumst við, fyrst hægt og svo mjög snögglega. Það var þessi stefnubreyting sem varð WOW að falli. Við gleymdum okkur í velgengninni og misstum sjónar áf uppruna okkar sem hreinræktað lággjaldafélag þar sem allt gekk út á að bjóða ávallt lægstu mögulegu fargjöldin með bros á vör.

Þess í stað fórum við að eltast við „legacy“-félög og máta okkur við Icelandair og eltast við markaðshlutdeild í stað arðsemi og kostnaðaraðhalds. Við innleiddum breiðþotur og stærri „premium“-sæti og bættum við alls kyns þjónustu með tilheyrandi kostnaði sem við reyndum að réttlæta með þeim rökum að tekjurnar myndu hækka enn meir, það reyndust dýrkeypt mistök.“

Aðeins tvö flugfélög í heiminum ekki ríkisstyrkt

Hann segir það fjarri sanni að fargjöld WOW air hafi verið ósjálfbær og viðskiptamódelið hefði ekki gengið til lengdar.

„Því fer fjarri, það eru aðeins tvö flugfélög í hinum vestræna heimi að mér vitandi sem ekki hafa þegið neinn ríkisstyrk á tímum Covid. Það eru Wizzair og Ryanair, hvort tveggja hreinræktuð lággjaldafélög sem eiga það sameiginlegt að stöðugt bjóða upp á lægstu fargjöldin á öllum sínum flugleiðum og oftast tugum prósenta lægri en keppinautar þeirra. Engu að síður hafa bæði Wizzair og Ryanair skilað betri arðsemi og vaxið hraðar en nánast öll önnur flugfélög í heimi ár eftir ár.“

Þá segist hann vera óheyrilega þakklátur og stoltur yfir því að hafa fengið tækifæri til að leiða og taka þátt í uppbyggingu félagsins með frábæru starfsfólki, samstarfsaðilum og farþegum.

„Ég sakna WOW í öllu sínu veldi! Takk fyrir ferðalagið!“ skrifar hann.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK