Ísmar kaupir Fálkann

Fálkinn er til húsa að Dalvegi í Kópavogi.
Fálkinn er til húsa að Dalvegi í Kópavogi. Ljósmynd/Aðsend

Gengið hefur verið frá kaupum Ísmars á Fálkanum. Greint er frá þessu í tilkynningu frá Ísmari og segir í henni að með kaupunum og samrekstri félaganna verði til sterk og öflug eining sem þjóni breiðum hópi viðskiptavina, með áherslu á stuðning við margvíslega innviði í íslensku samfélagi.

„Félögin starfa bæði að mestu á fyrirtækjamarkaði en kjarni starfseminnar er þjónusta, ráðgjöf og sala á tækni- og vélbúnaði til m.a. verkstæða, stóriðju, opinberra aðila, útgerða, verktaka, verkfræðistofa og orkufyrirtækja. Kaup Ísmars á Fálkanum skapa félögunum margvísleg tækifæri til áframhaldandi vaxtar og aukins vöruúrvals,“ segir í tilkynningunni.

Alls 32 starfsmenn

Ísmar hafi á undanförnum árum lagt áherslu á sölu, ráðgjöf og þjónustu á tæknibúnaði, svo sem mælitækjum og vélstýringum sem nýta sér GPS-tækni, lasertæki, búnað til sjómælinga, hitamyndavélar, fjarskiptabúnað, loftræstibúnað og hússtjórnarkerfi. Áherslur Fálkans hafi verið á sölu og þjónustu á tæknivörum tengdum bíla- og vélahlutum, véltæknivörum og raftæknivörum.

„Samrekstur félaganna skapar jafnframt aukin tækifæri til bættrar þjónustu við viðskiptavini. Bæði Ísmar og Fálkinn bjóða vörur frá leiðandi framleiðendum á hverju sviði. Stærstu birgjar félaganna eru Schneider Electric, Trimble, ZF, Flakt Group, Timken, Schaeffler Group; Motorola, Gifas, Sulzer, FLIR, Teledyne, Vent-Axia, Signode og Optibelt,“ segir í tilkynningunni.

Rekstur beggja félaga er sagður hafa gengið vel á undanförnum árum. Sá árangur byggi á þekkingu og reynslu hóps samhentra starfsmanna. Alls starfa 32 starfsmenn hjá félögunum og er ekki gert ráð fyrir að starfsfólki fækki í tengslum við kaupin.

Ísmar mun á næstu vikum flytja inn í starfsstöð Fálkans á Dalvegi 10-14 í Kópavogi þar sem félögin munu nýta sameiginlega aðstöðu fyrir verslun, vörugeymslu og skrifstofur. Ísmar og Fálkinn verða þó rekin hvort í sínu lagi. Gunnar Sverrisson framkvæmdastjóri Ísmars verður framkvæmdastjóri beggja félaga.

Stórt skref

Haft er eftir Gunnari að tvö ár séu nú síðan hann tók við sem framkvæmdastjóri Ísmars. Hann hafi notið þess að starfa með öflugum hópi starfsmanna fyrirtækisins.

„Það er því mikið fagnaðarefni að stíga nú þetta stóra skref sem tryggir áframhaldandi framþróun Ísmars og Fálkans og fá til liðs við okkur frábæran hóp reynslumikilla starfsmanna Fálkans. Það eru spennandi tímar fram undan og verður gaman að vinna með frábæru starfsfólki, viðskiptavinum og birgjum í að leiða uppbyggingu innviða á Íslandi á komandi árum.“

Ísmar er í eigu Sjávarsýnar ehf. (51%) og Framtakssjóðsins Freyju (49%).

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK