Boða kolefnishlutlausa steinsteypu frá og með 2030

Þorsteinn Víglundsson, forstjóri BM Vallá.
Þorsteinn Víglundsson, forstjóri BM Vallá. Ljósmynd/Aðsend

BM Vallá hefur sett sér það metnaðarfulla markmið að öll steypuframleiðsla fyrirtækisins og starfsemi verði kolefnishlutlaus árið 2030.

„Það er áskorun án hliðstæðu í heiminum en nýir tímar kalla á nýjar kröfur. Á næstu misserum munum við ráðast í markvissar aðgerðir í þágu grænni framtíðar þar til markmiðinu er náð. Við ætlum okkur að leita allra leiða til að gera steypuna okkar eins umhverfisvæna og kostur er,“ segir Þorsteinn Víglundsson, forstjóri BM Vallár.

Sementshlutinn er um 85% af heildarlosun CO2 í starfsemi BM Vallár. Um 15% eru tilkomin vegna ýmissa annarra þátta eins og efnisframleiðslu, flutninga á steypu og fleira. Með markvissum breytingum á verkferlum og ýmsum mótvægisaðgerðum ætlar BM Vallá að ná markmiðinu, kolefnishlutleysi árið 2030, að sögn Þorsteins.

„Nú þegar höfum við kortlagt aðgerðir sem nema um 60% af takmarkinu og vinnum markvisst að því að finna lausnir á því sem upp á vantar.

Halda opið og grænt bókhald

Unnið er á fimm mismunandi sviðum til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og nú þegar eru í notkun nýjar tegundir sements sem valda mun minni losun og eru auk þess hagkvæmari kostir. Til að fylla upp í markmiðið munum við gera ýmsar aðrar ráðstafanir hvað varðar endurnýtingu og hlutverk steinsteypu í hringrásarhagkerfinu, draga úr notkun sements eftir föngum, þar sem það á við, og að styðja við verkefni á sviði kolefnisbindingar, eins og skógrækt, endurheimt votlendis og fleira,“ segir Þorsteinn.

Hann bætir við að í öllu ferlinu muni BM Vallá halda opið grænt bókhald og gefa reglulega út hversu miklum árangri fyrirtækið hafi náð hverju sinni á þessari vegferð. „Árið 2020 var kolefnissporið okkar u.þ.b. 300 kg á hvern rúmmetra af steypu.“

„Mikilvægt er að huga að kolefnisspori byggingar strax á fyrstu …
„Mikilvægt er að huga að kolefnisspori byggingar strax á fyrstu stigum. Við hönnun sé þess gætt að nota réttar steyputegundir miðað við álagsforsendur, líftíma byggingar og kolefnisspor hennar frá vöggu til grafar,“ segir Þorsteinn. Ljósmynd/Aðsend

Frá fyrstu teikningu til síðustu hræru

Þorsteinn segir að byggingageirinn eins og hann leggur sig standi frammi fyrir risavöxnum áskorunum til að mæta þeim nýju kröfum sem fylgja minnkun kolefnisfótspors. „Þar bera allir ábyrgð, jafnt hönnuðir mannvirkja, arkitektar og verkfræðingar, sem og verktakar og aðrir framkvæmdaaðilar.“

Þorsteinn segir að það hafi aldrei verið mikilvægara en nú að reikna kolefnisspor mannvirkja allt frá fyrstu teikningum.

„Mikilvægt er að huga að kolefnisspori byggingar strax á fyrstu stigum. Við hönnun sé þess gætt að nota réttar steyputegundir miðað við álagsforsendur, líftíma byggingar og kolefnisspor hennar frá vöggu til grafar. Þar er steinsteypan góður kostur enda fá byggingarefni sem tryggja jafn vel langan endingartíma og traust mannvirki,“ segir hann og bætir við að með nýjum og umhverfisvænni kostum opnist fjölmörg tækifæri til að feta nýjar slóðir í átt að grænni framtíð.

Steypubílar frá BM Vallá.
Steypubílar frá BM Vallá. mbl.is/Hari
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK