Origo hefur keypt 100% hlut í Syndis

Origo tryggir sér Syndis.
Origo tryggir sér Syndis. mbl.is/Kristinn Magnússon

Syndis og öryggislausnir Origo sameinast undir merki Syndis eftir að Origo keypti 100% hlut í netöryggisfyrirtækinu Syndis. Markmiðið með kaupunum er að búa til sterka einingu sem býður heildstæða stafræna öryggisþjónustu og ráðgjöf og þróar varnir gegn netárásum og gagna- og auðkennisþjófnaði.

Í sameinuðu fyrirtæki munu starfa 20 öryggissérfræðingar, en níu manns flytjast yfir frá Origo til Syndis. Sameinuð þekking og reynsla úr báðum áttum mun gera Syndis enn betur í stakk búið að aðstoða fyrirtæki og stofnanir við að auka öryggisvitund ásamt því að vera enn betur undirbúin í að verjast netárásum, sem eru í sífelldri þróun að því er fram kemur í tilkynningu.

„Stafræn umbreyting er orðin ráðandi í starfsemi fyrirtækja og hún kallar á nýja nálgun í vörnum kerfa og gagna. Þá er aukin þörf á eftirliti með rekstrarumhverfi og fyrirbyggjandi aðgerðum. Við sjáum mikil sóknarfæri framundan eftir því sem stafrænni umbreytingu fyrirtækja vex ásmegin og teljum að sú sérhæfing sem Origo teymið býr yfir muni efla getu og þekkingu Syndis á öryggislausnum og vöktun. Markmiðið er að búa til einingu sem getur sérhæft sig í heildstæðri öryggisþekkingu og ráðgjöf og teljum að sá hópur sem mun starfa undir merkjum Syndis sé vel til þess fallinn,“ segir Valdimar Óskarsson, framkvæmdastjóri Syndis.

„Origo hefur um árabil byggt upp öflugt sérfræðingateymi í öryggislausnum, sem er með sterkt bakland birgja og samstarfsaðila eins og Cloudflare, CSIS, Microsoft og IBM. Markmiðið er að sameina tvær sterkar einingar sem bæta hvor aðra upp og hafa verið á fleygiferð í netöryggismálum. Með þessari sameiningu skipum við okkur fremst í flokki í öryggislausnum hér á landi,“ segir Anton Már Egilsson, forstöðumaður skýja- og öryggislausna Origo.

„Ljóst er að sá hópur sem verður hluti af Syndis mun stækka lausnaframboðið og þekkingu sína til muna. Við munum geta boðið sólarhringsvöktun á kerfum, aukna netöryggisþjónustu og ráðgjöf í skýjaþjónustu ásamt því að framkvæma öryggisprófanir, kóðarýni og fræðslu fyrir starfsfólk og sérstök námskeið fyrir forritara. Þar fyrir utan verður Syndis áfram íslenskt nýsköpunarfyrirtæki sem hefur það markmið að efla öryggi sinna viðskiptavina sem og samfélagsins í heild. Gríðarleg áhersla mun vera á að auka rannsóknar og þróunarstarf hér á landi sem mun mæta sívaxandi þörf fyrir öflugar lausnir og stafrænt öryggi til framtíðar,“ segir Theódór R. Gíslason, tæknistjóri Syndis.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK