„Setið fyrir mér“

Halldór Kristmannsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri og fjölmiðlatengiliður hjá Alvogen.
Halldór Kristmannsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri og fjölmiðlatengiliður hjá Alvogen. Ljósmynd/Aðsend

„Fordæmalaus harka í minn garð, sem uppljóstrara, er beinlínis með ólíkindum. Sama dag og nafni mínu er lekið í fjölmiðla og tilkynnt um „hvítþvottinn“, þá er setið fyrir mér fyrir utan World Class í Smáralind, með uppsagnarbréf og stefnu,“ segir Halldór Kristmannsson í tilkynningu til fjölmiðla í morgun en Morgunblaðið greindi frá yfirlýsingu Halldórs í morgun. 

„Halldór Kristmannsson, náinn samstarfsmaður Róberts Wessman til 18 ára, steig fram í síðustu viku og vakti athygli á stjórnunarháttum og ósæmilegri hegðun forstjórans. Halldór telur þetta vekja spurningar um hæfi Róberts, sem forstjóra og stjórnarformanns systurfyrirtækjanna Alvogen og Alvotech. Halldór hefur verið framkvæmdastjóri hjá Actavis, Alvogen og Alvotech frá árinu 2001.

Halldór segist áfram vilja ljúka málinu í sátt og utan dómstóla. Hann segir mikilvægt að fyrirtækin geti haldið áfram að vaxa og dafna, þannig að hann sem hluthafi geti verið stoltur af framgangi þeirra. Halldór hefur sent stjórnum Alvogen og Alvotech nýja sáttatillögu, þrátt fyrir að fyrirtækin hafi á einum og sama deginum rift ráðningarsamningi fyrirvaralaust, höfðað mál, lekið nafni hans í fjölmiðla og birt fréttatilkynningar, þar sem fram kom að enginn fótur væri fyrir ásökunum.

„Ég hef talsverðar áhyggjur af því að aðgerðarleysi Alvogen og Alvotech gagnvart Róbert Wessman, kunni að skaða orðspor fyrirtækjanna. Málið hefur vakið nokkra athygli erlendis á meðal samstarfsaðila, viðskiptavina og fjárfesta, sem hafa sumir hverjir sett sig í samband við mig. Umræddir aðilar hafa eðlilega borið upp spurningar og lýst áhyggjum af þróun mála. Sama á við um íslenska fjárfesta, sem komu nýlega að fjármögnun Alvotech, og aðra sem hafa hagsmuna að gæta hér á landi.

Ég vil því stíga fram og ítreka sáttahug og velvilja í garð fyrirtækjanna og samstarfsmanna. Slík sátt setur hagsmuni fyrirtækjanna í forgang og felur í sér að óháðir stjórnarmenn taki hæfi Róberts til alvarlegrar skoðunar. Auðmýkt, virðing og almenn skynsemi, er það eina sem þarf til að ljúka þessu máli, með farsælum hætti.“

Halldór segist hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum, með viðbrögð fyrirtækjanna við ábendingum sínum, sem lagðar voru fram í janúar. Sú sérkennilega „taktík“ að skjóta sendiboðann og hvítþvo Róbert, sé augljóslega til þess fallin að rýra trúverðugleika stjórnarmanna og hluthafa, og geti að óbreyttu skaðað orðspor fyrirtækjanna til framtíðar.

„Ég hef enn ekki fengið neina niðurstöðu um rannsókn, enda hef ég ástæðu til að efast um að einhver rannsóknarskýrsla hafi yfir höfuð verið gerð. Mér var meinaður aðgangur að vinnugögnum, til að aðstoða við rannsóknina, og frá byrjun var ljóst að lögfræðistofunni White & Case, var falið að „hvítþvo“ Róbert.  Enn og aftur, virðist stjórn Alvogen ætla að horfa fram hjá kvörtunum um ósæmilega hegðun Róberts

Fordæmalaus harka í minn garð, sem uppljóstrara, er beinlínis með ólíkindum. Sama dag og nafni mínu er lekið í fjölmiðla og tilkynnt um „hvítþvottinn“, þá er setið fyrir mér fyrir utan World Class í Smáralind, með uppsagnarbréf og stefnu, þar sem fyrirtækin hyggjast freista þess að fá lögmæti uppsagnarinnar staðfest fyrir héraðsdómi. Stjórnum fyrirtækjanna virðist einfaldlega vera ofviða að framkvæma óháða rannsókn á stjórnarformanni, forstjóra og sínum stærsta hluthafa, eða aðhafast nokkuð yfir höfuð þegar Róbert er annars vegar.“ 

„Engar stoðir.....allir starfsmenn....og var í flugvél“

Svo hefur íslenskum lögmanni verið falið það vandasama hlutverk að standa fyrir framan sjónvarpsmyndavélar, og fullyrða, með hæfilegri sannfæringu þó, að „engar stoðir séu fyrir ásökunum“ og að „allir starfsmenn, sem rætt hafi verið við, beri Róbert vel söguna“. Það er auðvitað kjánalegt að horfa upp á slíkt. Yfirlýsingar félagsins eru augljóslega í litlu samhengi við opinbera  afsökunarbeiðni Róberts, á hluta brotanna deginum áður, að fjölmiðlar hafi rætt við vitni, og að fyrir liggi ógrynni af gögnum, er varða alvarlegar ásakanir forstjórans gagnvart meintum óvildarmönnum, sem hann vildi koma höggi á.

Þá vakti það athygli mína að talsmaður Róberts kýs að halda því sérstaklega til haga í fjölmiðlum, að forstjórinn hafi verið í flugvél þegar morðhótanir áttu sér stað, og hafi reyndar engum hótað frá árinu 2016,“ segir Halldór í yfirlýsingu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK