Samskipti við Björgólf sögð alvarlegt trúnaðarbrot

Björgólfur Thor Björgólfsson.
Björgólfur Thor Björgólfsson. Ljósmynd/Vefur BTB

Halldór Kristmannsson, fyrrverandi samskiptastjóri Alvogen og einn nánasti samstarfsmaður Róberts Wessman um langt skeið, stofnanda fyrirtækisins, upplýsti um það í viðtölum við lögmannsstofuna White & Case, sem var falið að framkvæma athugun á ásökunum hans á hendur Róberti, að hafa fundað með Björgólfi Thor Björgólfssyni, fjárfesti og aðaleiganda Novator, í nóvember 2020. Þetta kemur fram í frétt Markaðarins, fylgiblaðs Fréttablaðsins í dag.

Frétt mbl.is

„For­dæma­laus harka í minn garð, sem upp­ljóstr­ara, er bein­lín­is með ólík­ind­um. Sama dag og nafni mínu er lekið í fjöl­miðla og til­kynnt um „hvítþvott­inn“, þá er setið fyr­ir mér fyr­ir utan World Class í Smáralind, með upp­sagn­ar­bréf og stefnu,“ seg­ir Hall­dór Krist­manns­son í til­kynn­ingu sem hann sendi til fjöl­miðla í gærmorg­un.

Í stefnu Alvogen á hendur Halldóri, sem var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær og Markaðurinn hefur undir höndum, er fullyrt að samkvæmt lýsingum Halldórs sjálfs hafi tilgangur hans með fundinum verið að „afla upplýsinga í því skyni að reyna að koma sér í aðstöðu sem gæti nýst honum til að gera kröfur á hendur félaginu um fjárhagslegt uppgjör sér til handa“.

Alvogen segir í stefnunni að félagið telji „slík samskipti mjög alvarlegt trúnaðarbrot. Þessi samskipti eru í ljósi ráðningarsamnings og trúnaðarskyldu [Halldórs] með öllu óeðlileg. Þessar upplýsingar komu [Alvogen] í opna skjöldu.“

Sjá nánar hér

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK