Mestu kaup SÍ á gjaldeyri síðan í febrúar 2017

Íslenska krónan styrktist á móti evru í júní, en veiktist á móti Bandaríkjadal. Af 18 viðskiptadögum í júní greip Seðlabanki Íslands inn í á markaði sex daga, öll skiptin á kauphliðinni. Alls  keypti SÍ evrur fyrir 18,2 milljarða kr., sem eru mestu kaup í einum mánuði síðan í febrúar 2017.

Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans. 

Fram kemur, að í lok júní hafi evran staðið í 146,5 krónum í samanburði við 147,6 kr. í lok maí. Bandaríkjadalur stóð í 123,2 krónum í lok júní samanborið við 121,0 í lok maí.

Velta á gjaldeyrismarkaði nam 41,4 milljörðum kr. (282 milljónum evra) í júní og jókst um 17% milli mánaða. Hlutdeild SÍ var 18,2 ma.kr (44%).

„Af 18 viðskiptadögum í júní greip SÍ inn í markaðinn sex daga, öll skiptin á kauphliðinni. Alls keypti SÍ evrur fyrir 18,2 ma.kr. (124 m.evra). Þar af 12,7 ma.kr. (87 m.evra) næstu tvo daga eftir að hlutafjárútboði Íslandsbanka lauk og voru þau kaup að öllum líkindum í tengslum við þátttöku erlendra fjárfesta því útboði. Þetta eru mestu nettó kaup SÍ í einum mánuði síðan í febrúar 2017. Þrátt fyrir þessi kaup er nettó sala SÍ á gjaldeyri síðan byrjun Covid-19 faraldursins 152 ma.kr., eða sem nemur um 18% af forðanum í upphafi faraldursins,“ segir enn fremur í Hagsjánni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK