Opna líkamsræktarstöð í Ásvallalaug

Geir Bjarnason, íþrótta- og tómstundafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar, Kjartan Már Hallkelsson, eigandi …
Geir Bjarnason, íþrótta- og tómstundafulltrúi Hafnarfjarðarbæjar, Kjartan Már Hallkelsson, eigandi GYM heilsu, og Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar við undirritun á samningi í vikunni. Ljósmynd/Hafnarfjörður

Hafnarfjarðarbær og GYM heilsa ehf. hafa samið um leigu á húsnæði í Ásvallalaug sem ætlað er undir líkamsræktarstöð. Þar mun GYM heilsa opna sína aðra líkamsræktarstöð í Hafnarfirði, en fyrirtækið hefur frá árinu 1999 rekið stöð í Suðurbæjarlaug. 

Samningstímabilið er frá og með 1. ágúst þessa árs til og með 31. júlí 2026. GYM heilsa hefur að samningstíma loknum forleigurétt til þriggja ára verði húsnæðið áfram leigt til sambærilegra nota. Gert er ráð fyrir að ný stöð opni á haustmánuðum. 

GYM heilsa rekur fyrir tíu heilsuræktarstöðvar á Íslandi tengdar sundlaugum. Fyrsta stöðin var opnuð af sænskum aðilum árið 1997 í Sundlaug Kópavogs. Sumarið 2013 keyptu Kjartan Már Hallkelsson og Guðrún Benediktsdóttir fyrirtækið en þau ásamt fjölskylduaðilum þeirra beggja hafa annast reksturinn frá 1997/1998.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK