Reynir nýr forstjóri SaltPay

Reynir Grétarsson, nýr forstjóri SaltPlay.
Reynir Grétarsson, nýr forstjóri SaltPlay. Ljósmynd/Aðsend

Reynir Grétarsson hefur verið ráðinn sem forstjóri fjármálafyrirtækisins SaltPay. Þá flutti fyrirtækið skrifstofur sínar í nýtt húsnæði að Katrínartúni 4 í dag.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá SaltPay, sem áður hét Borgun.

Reynir var áður stofnandi og einn aðaleigenda CreditInfo og starfaði sem forstjóri fyrirtækisins til ársins 2017. Hann tekur við af þeim Eduardo Pontes og Marcos Nunes sem hafa undanfarið ár deilt forstjórastól SaltPay.

Reynir hefur setið í stjórn fyrirtækisins um nokkra hríð og mun samhliða ganga úr stjórn fyrirtækisins. Hann er með meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands og gráðu í mannfræði frá sama skóla.

Samhliða flutningunum í nýtt húsnæði leitar SaltPay nú að starfsfólki í nokkur störf innan félagsins en markmiðið er að ráða í heildina um 20 nýja starfsmenn.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK