Hjálti Már nýr viðskiptaþróunarstjóri Datera

Hjalti Már Einarsson, viðskiptaþróunarstjóri hjá Datera.
Hjalti Már Einarsson, viðskiptaþróunarstjóri hjá Datera. Ljósmynd/Aðsend

Hjalti Már Einarsson hefur verið ráðinn viðskiptaþróunarstjóri hjá Datera og hefur hann þegar hafið störf, að því er greint er frá í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Datera sérhæfir sig í ráðgjöf í gagnadrifinni, stafrænni markaðssetningu og birtingum. Hjá Datera mun Hjalti leiða sókn inn á nýja markaði, hjálpa viðskiptavinum við stefnumótun í stafrænni markaðssetningu sem og að veita almenna ráðgjöf en hann hefur verið viðloðandi vefmál og starfræna markaðssetningu í yfir 20 ár. 

Síðastliðin 12 ár hefur Hjalti starfað sem forstöðumaður markaðssviðs ferðaþjónustufyrirtækisins Nordic Visitor ásamt því að sitja í framkvæmdastjórn fyrirtækisins. Þá leiddi hann einnig markaðssetningu og vefmál fyrirtækisins, tók þátt í uppbyggingu vörumerkisins á alþjóðamarkaði og tók virkan þátt í vexti þess á alþjóðavísu.

Hjalti er með MS-gráðu í upplýsingatækni og rafrænum viðskiptum frá IT Universitet í Kaupmannahöfn og Bachelor-gráðu í stjórnun og framleiðslu miðla frá Den Grafiske Höjskole í Kaupmannahöfn. Hann hefur setið í stjórn Samtaka vefnaðarins, í faghópi vefstjórnenda hjá SKÝ og í stjórn körfuknattleiksdeildar KR.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK