Landsbankinn hækkar vexti

Ný vaxtatafla tekur gildi 1. september 2021.
Ný vaxtatafla tekur gildi 1. september 2021. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Landsbankinn hækkar breytilega vexti á óverðtryggðum íbúðalánum um 0,20 prósentustig. Ný vaxtatafla tekur gildi á morgun, þriðjudaginn 1. september 2021.

Fastir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum breytast þó ekki. Vextir á verðtryggðum íbúðalánum, bæði breytilegir og fastir, verða einnig óbreyttir, að því er segir í tilkynningu.

Kjörvextir á óverðtryggðum útlánum hækka um 0,20 prósentustig en kjörvextir á verðtryggðum útlánum verða óbreyttir. Vextir óverðtryggðra lána vegna bíla- og tækjafjármögnunar hækka um 0,20 prósentustig og yfirdráttarvextir hækka um 0,25 prósentustig.

Þá hækka vextir á óverðtryggðum sparireikningum 0,20 prósentustig, vextir á reikningum með föstum vöxtum hækka í flestum tilvikum um 0,25 prósentustig en vextir almennra veltureikninga verða óbreyttir.

Vaxtaákvörðun tekin í kjölfar vaxtahækkunar Seðlabankans

„Ofangreind vaxtaákvörðun Landsbankans er tekin í kjölfar vaxtahækkunar Seðlabanka Íslands frá 25. ágúst sl. en þá hækkaði Seðlabankinn vexti um 0,25 prósentustig. Vaxtabreytingarnar taka einnig mið af ávöxtunarkröfu á skuldabréfamarkaði og öðrum fjármögnunarkjörum bankans,“ segir í tilkynningunni.

Breytingar á vöxtum á lánum sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka þó gildi í samræmi við tilkynningar þar að lútandi sem sendar verða viðskiptavinum í netbanka.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK