Minni spurn eftir flugi

Icelandair stefnir á að bjóða upp á 160 brottfarir á …
Icelandair stefnir á að bjóða upp á 160 brottfarir á viku. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Icelandair áætlar að fljúga til 25 áfangastaða í millilandaflugi á tímabilinu 1. október til 31. mars, að því er segir í fréttatilkynningu.

Flogið verður til 23 áfangastaða frá Keflavíkurflugveli, 15 í Evrópu og 8 í Norður-Ameríku en auk þess verður flogið frá Reykjavíkurflugvelli til tveggja áfangastaða á Grænlandi.

160 brottfarir á viku

Stefnt er að því að bjóða upp á um 160 ferðir á viku frá Íslandi í vetur. Yfir háannatímann í sumar voru vikulegar brottfarir um 200 talsins.

Segir í tilkynningu að staða heimsfaraldursins geri það að verkum að spurn eftir flugi sé lítið eitt minni en gert var ráð fyrir þegar uppgjör annars ársfjórðungs Icelandair Group var kynnt. Félagið gerði þá ráð fyrir að flugframboð í vetraráætlun 2021-2022 gæti náð um það bil 70-80% af framboði sama tímabils árið 2019.

Félagið reiknar nú með að í nýrri vetraráætlun verði framboðið frá október til desember um 65% af framboði sömu mánaða árið 2019 og í janúar til mars 2022 verði hlutfallið um 75%.

Vetrarhlé á flugi til ákveðinna áfangastaða

„Vetrarhlé verður gert á flugi til áfangastaða þar sem eftirspurnin hefur ekki náð sér jafn vel á strik, til að mynda Helsinki, Glasgow, London Gatwick, Minneapolis og Portland. Haft verður samband við þá farþega sem eiga bókað flug á þessa staði og þeim boðnar aðrar leiðir til að komast á áfangastað,“ segir í tilkynningunni.

„Við höfum verið í stöðugri uppbyggingu og aukið flugið jafnt og þétt undanfarnar vikur og höldum ótrauð áfram á þeirri vegferð, þó við þurfum nú að draga örlítið úr í takt við breytingar á eftirspurn. Við erum sem fyrr viðbúin því að eftirspurn muni halda áfram að sveiflast í takt við stöðuna á hverjum tíma og munum halda áfram að nýta þann sveigjanleika sem við höfum til að aðlaga áætlunina okkar eftir því sem þörf er á,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK