Veðskuldabréfi þinglýst rafrænt í fyrsta sinn

Rafrænar þinglýsingar munu einfalda störf allra sem koma að meðferð …
Rafrænar þinglýsingar munu einfalda störf allra sem koma að meðferð skjala. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Veðskuldabréfi hefur í fyrsta sinn verið þinglýst rafrænt hér á Íslandi, í sjálfvirku ferli.

Um var að ræða veðskuldabréf vegna bifreiðakaupa. Búist er við því að með haustinu fari almenningur í auknum mæli að sjá ávinninginn þegar fjármálastofnanir fara að tengjast kerfinu, að því er segir í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu.

Fram kemur að undir merkjum verkefnisins Stafræn þjónusta sýslumanna hafi sýslumenn, dómsmálaráðuneytið, Þjóðskrá, Stafrænt Ísland og fleiri unnið að stafrænum lausnum á tímafrekum og algengum viðvikum almennings hjá sýslumönnum.

„Veðskuldabréfum vegna bifreiðakaupa og endurfjármögnunar fasteignalána þarf að þinglýsa hjá sýslumönnum og hefur það ferli haft í för með sér ferðir á milli staða til að safna undirskriftum og til að skila inn pappírum. Nú geta fjármálastofnanir þinglýst veðskuldabréfum rafrænt ef um er að ræða bifreiðakaup eða ný fasteignalán með beinlínutengingu frá eigin kerfum og yfir í vefþjónustu rafrænna þinglýsinga,“ segir í tilkynningunni.

Þessi rafræna þinglýsing markar lok þriðja stóra áfanga verkefnisins um Stafræna þjónustu sýslumanna. Fyrr á árinu var lokið við rafrænar aflýsingar og rafrænar skilmálabreytingar vegna Covid-19.

„Ljóst er að rafrænar þinglýsingar munu einfalda störf allra sem koma að meðferð skjala, hafa jákvæð umhverfisáhrif og skapa mikið hagræði,“ segir einnig í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK