RL tekur yfir Jóakim

Jóakim er hugbúnaðarkerfi sem heldur meðal annars utan um iðgjaldainnheimtu, …
Jóakim er hugbúnaðarkerfi sem heldur meðal annars utan um iðgjaldainnheimtu, verðbréfavörslu og lífeyrisgreiðslur fyrir lífeyrisfélög. AFP

Reiknistofa lífeyrissjóða (RL)  mun taka yfir rekstur á hugbúnaðarkerfinu Jóakim. Starfsfólk Jóakim og Init hefur verið upplýst um þessa ákvörðun.

Jóakim heldur meðal annars utan um iðgjaldainnheimtu, verðbréfavörslu og lífeyrisgreiðslur.

Samningi RL og Init var sagt upp í júní, eftir að upp komst um brot Init á samningnum, sem síðar voru staðfest í óháðri úttekt.

Skref í umfangsmikilli vinnu

Yfirtakan er eitt skref í umfangsmikilli vinnu Reiknistofu lífeyrissjóða og þeirra lífeyrissjóða sem aðild eiga að Jóakim kerfinu. Þar hafa nánast öll atriði sem snúa að rekstri og þróun kerfisins ásamt samningum við Init verið teknir til skoðunar.

Sú vinna mun halda áfram næstu mánuði og misseri og í tilkynningu frá RL segir að sjóðfélagar verði upplýstir um þróun einstakra mála eftir því sem efni og aðstæður leyfa.

Áhersla verður lögð á að tryggja áfram öruggan rekstur hugbúnaðarkerfisins Jóakim og öryggi þeirra gagna sem kerfið heldur utan um, að því sem kemur fram í tilkynningunni.

Þá verður einnig stefnt að því að draga úr kostnaði við rekstur á Jóakim kerfinu til lengri tíma, meðal annars með því að einfalda rekstrarfyrirkomulag.

Tryggja áframhaldandi aðkomu starfsfólks Init

Starfsfólk Init hefur síðustu árin séð um rekstur og þróun Jóakim tölvukerfisins en á næstu mánuðum verður unnið að yfirfærslu rekstrarins með þeirra hjálp.

„Mikilvægt er að tryggja áframhaldandi aðkomu þeirra að rekstrinum, enda býr starfsfólkið yfir yfirgripsmikilli þekkingu á Jóakim kerfinu sem og lífeyriskerfinu í heild sinni.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK