Vaxtamunur útskýri áhugann á Mílu

Snorri Jakobsson, greinandi hjá Jakobsson Capital.
Snorri Jakobsson, greinandi hjá Jakobsson Capital. mbl.is/Arnþór

„Það liggja ekki miklar upplýsingar fyrir um möguleg kaup á Mílu að svo stöddu svo að það er erfitt að segja nákvæmlega til um hvaða möguleikar eru uppi,“ segir Snorri Jakobsson, greinandi hjá Jakobsson Captal í samtali mbl.is spurður út í mögulega aðkomu íslenskra lífeyrissjóðum að kaupum á Mílu. 

Greint hefur verið frá því að franska fyr­ir­tækið Ardi­a hafi  skrifað und­ir sam­komu­lag um einkaviðræður og helstu skil­mála vegna áformaðra kaupa þess á Mílu, dótt­ur­fé­lagi Sím­ans. 

Um er að ræða alþjóðlegt sjóðsstýr­ing­ar­fyr­ir­tæki með höfuðstöðvar í Par­ís. Það legg­ur áherslu á ábyrg­ar lang­tíma­fjár­fest­ing­ar. Fé­lagið er í meiri­hluta­eigu starfs­fólks, sem á 70% í fé­lag­inu.

Míla er dótturfélag Símans.
Míla er dótturfélag Símans. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Allt önnur ávöxtunarkrafa

„Möguleg aðkoma íslenskra lífeyrissjóða að kaupum á Mílu myndi alltaf velta á hver konar kjör þeir eru tilbúnir að sætta sig við,“ segir Snorri og útskýrir að erlendir fjárfestar geti sætt sig við allt aðrar ávöxtunarkröfur en það sem þekkist á Íslandi. 

Almennt er ekki ráðist í sölu sem þessa, þar sem innviðir sem nota á áfram eru seldir, nema að verðið sé gott og rekstrarleigusamningur hagstæður. 

Öruggt, verðtryggt sjóðstreymi

„Ef af verður, er um að ræða stöðugt sjóðstreymi, mjög öruggar tekjur og vaxtaumhverfið erlendis er allt annað en það er hérna heima. Þess vegna geta erlendir fjárfestingarsjóðir leyft sér slíkar fjárfestingar, þar sem fjármögnunarkostnaður er allt annar. Á meðan gæti Síminn losað um töluvert fjármagn, greitt niður skuldir eða ráðist í fjárfestingar og leigt kerfið á hagstæðum kjörum,“ segir Snorri.

Hann segir að fjárfesting sem þessi sé á borð við ríkisskuldarbréf. „Ríkisskuldabréf erlendis eru á allt öðrum kjörum en gengur og gerist hér á landi. Þess vegna er sótt í svona fjárfestingar. Það er leitun að öruggri verðtryggðir fjárfestingu“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK