Rio Tinto snýst til varnar

Við suðurenda álversins í Straumsvík vilja bæjaryfirvöld og Vegagerðin koma …
Við suðurenda álversins í Straumsvík vilja bæjaryfirvöld og Vegagerðin koma upp nýjum gatnamótum með hringtorgi. Rio Tinto leggst gegn áformunum sem ná inn á land fyrirtækisins. Árni Sæberg

Rio Tinto í Straumsvík á í viðræðum við Hafnarfjarðarbæ vegna fyrirhugaðra breytinga á aðalskipulagi bæjarins í tengslum við tvöföldun Reykjanesbrautar á núverandi vegstæði, frá Krýsuvíkurvegi að mörkum Sveitarfélagsins Voga.

Hefur fyrirtækið lagst hart gegn hugmyndum sem miða að því að komið verði fyrir nýju hringtorgi sem sker inn á vesturenda núverandi athafnasvæðis þess. Samkvæmt tillögum Vegagerðarinnar á hringtorgið að tengjast undirgöngum sem í dag miðla umferð til og frá Reykjanesbraut af athafnasvæði Rio Tinto. Líkt og Rio Tinto hefur bent á voru undirgöng þessi hugsuð til bráðabirgða og telur fyrirtækið að þau, ásamt nýju hringtorgi og römpum, muni illa ráða við mikla þungaumferð sem áætlað er að fari um þennan veg á komandi árum.

Í athugasemdum sem fyrirtækið hefur komið skriflega á framfæri við Hafnarfjarðarbæ og Skipulagsstofnun er áhyggjum lýst af umferðaröryggi starfsfólks fyrirtækisins og annarra vegfarenda í Straumsvík. Þá telur fyrirtækið augljóslega, af athugasemdunum að dæma, að það svæði sem færi undir fyrrnefnt hringtorg geti skipt sköpum í tengslum við framtíðaruppbyggingu starfsemi álversins.

„Mikil eftirspurn er eftir áli og verð hátt, sem kann að gera breytingar á skála 3 fýsilegar. Núverandi hönnun á mislægum gatnamótum við ISAL rýrir möguleika fyrirtækisins til lengingar á kerskála 3,“ segir í fyrrnefndum athugasemdum fyrirtækisins. 

Lestu meira um málið í ViðskiptaMogganum í dag.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK