Stöðugur vöxtur í skuldabréfaútgáfu

Skráð skuldabréf eru æ álitlegri kostur við fjármögnun fyrirtækja að …
Skráð skuldabréf eru æ álitlegri kostur við fjármögnun fyrirtækja að sögn sérfræðings hjá Fossum. Ljósmynd/Aðsend

„Þessi markaður er að stækka á ágætum hraða. Bæði ef við lítum til fjölda útgefenda og í umfangi. Verulegur hluti er að koma inn í formi sjálfbærra skuldabréfa og margir útgefendur eru að nota skuldabréfamarkaðinn til þess að greiða upp eldri flokka og aðra bankafjármögnun.“ Þetta segir Arnar Geir Sæmundsson sem starfar hjá fyrirtækjaráðgjöf Fossa markaða, en fyrirtækið heldur utan um fleiri útgáfur skráðra skuldabréfa en nokkuð annað fjármálafyrirtæki hér á landi.

Arnar Geir Sæmundsson.
Arnar Geir Sæmundsson.

Vextir lágir og álagið einnig

„Ástæðan fyrir þessari þróun, að mínu mati, er einfaldlega sú að aðstæður fyrir útgefendur, þ.e. lántaka, eru sögulega góðar núna. Bæði eru vextir lágir og álag á fyrirtækjabréf miðað við ríkisskuldabréf hefur einnig lækkað talsvert á síðustu mánuðum.“ Viðurkennir Arnar Geir að staðan hafi verið snúin í upphafi kórónuveirufaraldursins en staðan hafi snúist hratt í jákvæða átt.

Lestu meira um málið í ViðskiptaMogganum í dag.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK