Kringlueignir ehf. teknar til gjaldþrotaskipta

Björn Ingi Hrafnsson.
Björn Ingi Hrafnsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Eignarhaldsfélagið Kringlueignir ehf. var tekið til gjaldþrotaskipta með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur 15. desember síðastliðinn, en félagið var í eigu Björns Inga Hrafnssonar, útgefanda fjölmiðlafyrirtækisins Pressunnar.

Tilgangur félagsins var kaup, sala og rekstur, rekstur fasteigna, lánastarfsemi og annar skyldur rekstur.

Í ársreikningi Kringlueigna ehf. fyrir árið 2015 kom fram að eigið fé var jákvætt um 465.800 krónur. Þá var tap félagsins það árið 16.400 krónur og árið þar á undan 17.800 krónur.

Í Lög­birt­inga­blaðinu er skorað á alla þá sem telja til skulda eða annarra rétt­inda á hend­ur bú­inu eða eigna í umráðum þess að lýsa yfir kröf­um sín­um fyr­ir skipta­stjóra inn­an tveggja mánaða. Þá verður hald­inn skipta­fund­ur þar sem fjallað verður um lýst­ar kröf­ur og ráðstöf­un á eign­um og rétt­ind­um bús­ins.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK