Endurvinnslustöð í stað olíutanka 

Fyrir hádegi í dag var seinni af tveimur olíubirgðatönkum felldur á lóð Hringrásar við Álhellu 1 nær Straumsvík, en á Þorláksmessu var fyrri tankurinn felldur.

Um er að ræða lóð sem heitir Álhella 1 og gegndi lengi vel hlutverki varaflsstöðvar fyrir álverið í Straumsvík. Í stað tankanna mun rísa nýmóðins brotajárnsendurvinnslustöð, sú fyrsta af sínum toga hér á landi. 

Tætir heilu bílflökin í sig

Tætarinn sem um ræðir mun vera kleift að tæta heilu bílflökin í sig og því ljóst að hinn nýfelldi tankur hefði vel komist í endurvinnslu þar á bæ, væri stöðin tilbúin.

„Það hefði verið mjög flott [að endurvinna tankinn þarna], en við þurfum að koma járninu í burtu af svæðinu áður en við getum byrjað að byggja þarna aftur,“ segir Bjarni Viðarsson hjá Hringrás. Þá geti brotajárnsvinnslan hafist af fullum krafti.

„Það kemur bara út kurl hinum megin. Ef það eru einhver óhreinindi í þessu þá flokkar vélin það,“ segir hann en hægt er að setja bíla í heilu lagi

Spurður hvort vél af þessum toga sé þegar í notkun hér á landi svarar hann að þegar séu til gamlar vélar en þessi sé fyrsta nýmóðins-vélin sem fylgir öllum nýjustu öryggis-, hávaða- og mengunarstöðlum, til að nefna nokkra.

„Það er verið að fara alla leið í þessu.“

Notast var við vír og vörubíla við að fella tankana.
Notast var við vír og vörubíla við að fella tankana. Ljósmynd/Hringrás
Lóðin sem um ræðir.
Lóðin sem um ræðir. Ljósmynd/Hringrás
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK