497 sagt upp í níu hópuppsögnum í fyrra

8.789 manns misstu vinnuna árið 2020 vegna kórónuveirufaraldursins.
8.789 manns misstu vinnuna árið 2020 vegna kórónuveirufaraldursins. Eggert Jóhannesson

Engar tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í desember. Alls bárust níu tilkynningar um hópuppsagnir í fyrra þar sem 497 manns var sagt upp störfum.

Þetta er töluvert minna en árið 2020 þegar 8.789 manns misstu vinnuna vegna kórónuveirufaraldursins.

Flestir sem misstu vinnuna í fyrra störfuðu í flutningum eða 253 og þar á eftir 84 sem störfuðu hjá fiskvinnslu.

Ef litið er til landshluta þá var langmest um hópuppsagnir á höfuðborgarsvæðinu í fyrra eða 77,5%. Næst flestar voru á Suðurnesjum eða um 10,5%.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK