Sá vinsælasti síðustu tvö árin

11,4% af kortaveltu á netinu í nóvember í fyrra fór …
11,4% af kortaveltu á netinu í nóvember í fyrra fór fram á Singles Day. AFP

Greining Rannsóknarseturs verslunarinnar á innlendri kortaveltu með daglegri tíðni leiddi í ljós skýr merki þess að Singles Day, eða Dagur einhleypra, hefði verið vinsælasti afsláttardagur nóvembermánaðar síðastliðin tvö ár.

11,4% af heildarkortaveltu á netinu í nóvember í fyrra fóru fram á Singles Day, hinn 11.11. 2021. Velta á netinu í nóvember síðastliðnum var næstmest á Svörtum föstudegi en 6,7% af heildarkortaveltu á netinu fóru fram hinn 27.11. 2021, að því er kemur fram í tilkynningu.

Afsláttardagar nóvembermánaðar virðast hafa lítil áhrif á kortaveltu sem fer í gegnum posa og dreifðist sú velta nokkuð jafnt á milli daga í nóvember síðustu tvö árin. Svartur föstudagur var þó stærstur en rúmlega 5% af heildarkortaveltu sem fór í gegnum posa í nóvember fóru fram á þeim degi mánaðarins bæði árin.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK