Netsala með lyf tekur kipp með sóttkví þúsunda

170 prósent aukning á sölu í gegnum appið hefur orðið …
170 prósent aukning á sölu í gegnum appið hefur orðið á einu ári. mbl.is/Thinkstock.com

Karen Ósk Gylfadóttir, sviðsstjóri markaðsmála og stafrænna lausna hjá Lyfju, segir þúsundir Íslendinga hafa fengið heimsendingu á lyfjum í gegnum app Lyfju síðustu daga.

„Á einu ári hefur orðið tæplega 170% aukning á sölu í gegnum appið og er appið orðið eitt af okkar stærstu apótekum í dag,“ segir Karen Ósk. Lyfja setji þessa dagana daglega met í fjölda heimsendinga.

Tilefnið er að ríflega 20 þúsund manns eru í sóttkví eða einangrun vegna kórónuveirunnar.

Vísbending um fleiri fæðingar

Það hefur víðtæk áhrif en fram hefur komið í Morgunblaðinu að met hafa fallið í netsölu með matvöru.

Karen Ósk segir sóttvarnir hafi leitt til breytinga á neyslumynstrinu.

„Það var margt áhugavert í neyslubreytingum Íslendinga, við hefðum til dæmis getað spáð fyrir um aukningu barnsburða á árinu löngu áður en tölur voru birtar því sala á meðgöngusjálfsprófum jókst gífurlega,“ segir Karen Ósk.

Nánar má lesa um málið í Morgunblaðinu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK